05 September 2011

Æfing dagsins - Dagens pass

WOD (workout of the day) dagsins í Crossfit Reykjavík er Karen og samanstendur af 150 endurtekningum af wallballs (kasta bolta í vegg) yfir 3 metra háa línu. Krafa er gerð um að taka djúpa hnébeygju (niður fyrir 90°) áður en boltanum er kastað upp. Þyngdir á bolta eru 14 lbs fyrir konur og 20 lbs fyrir karla. Mjög skemmtilega leiðinleg æfing að mínu mati og tekur vel á í raun allan líkamann :)

Ég mun þó að öllum líkindum ekki taka Karen í dag þar sem að ég er að undirbúa mig fyrir meistaramótið í Crossfit sem haldið er í Stokkhólmi um miðjan október og heitir SM. Við Elín erum báðar að fara að keppa á því og Númi, unnustinn hennar Elínar og einn fremsti Crossfit-arinn í Evrópu, var svo góður að útbúa fyrir mig æfingaprógram sem ég mun fylgja fram að móti.
Æfingin mín í dag er því:

Strenght (styrkur):
Split Jerk 3x2 endurtekningar, 85% af PR (personal record),
Deadlift 3x2 endurtekningar, 85% af PR,
Muscle up 2x1 endurtekning, hvíla í 20 sek 3x

Metcon (þolæfing):
Á tíma: 12-9-6 endurtekningar af:
30kg ground to overhead,
GHD uppsetur,
Chest to bar upphýfingar

Að þessu loknu fer ég að kenna 45 mín spinning tíma - svona aðeins til að ná mér niður ;)

-Jakobína-



Dagens Pass í Crossfit Nordic samanstóð af:



STRENGTH: Marklyft 1-1-1-1 repetitioner på 90-100% av din kapacitet (PR-försök)
Styrkefrivändning 1-1-1-1 repetitioner på 90-100% av din kapacitet (PR-försök)
METCON:
Inom varje 2 minuter, i 10 minuter:
Marklyft (80% av 1 RM)
Svingar (24/16kg)
Tuck jump
20 Double-unders

Ég var ekki alveg uppá mitt besta í dag en ég er búin að vera að drepast í höndunum síðan á laugardaginn. Er nokkuð viss um að hendurnar á mér séu ekki að höndla muscle-up strögglið:/ Ég ákvað því að reyna ekki við PR (personal record)  þyngdir í dag. Tók 100 kg í marklyft (deadlift) en á 115 kg og tók aðeins 50 kg í styrkefrivändning (power-clean). Wod dagsins var frekar auðvelt og hentaði mér vel. Fengum tvær mínútur til að klára hvert sett (5 alls) og áttum að keyra á það eins hratt og við gátum í hvert skipti, restin af tímanum fór í hvíld. Ég tók reyndar 20 og 24 kílóa ketilbjöllu í staðinn fyrir 16 kílóin þar sem ég er frekar léleg í sveiflunum og þarf að æfa mig með þyngri bjöllu. Er nokkuð viss um að það verði ketilbjöllusveiflur á SM og aðeins 40 dagar í þann viðburð!!

Ef þið eigið einhverjar töfralausnir fyrir skaddaðar hendur þá endilega látið mig vita :)

-Elín-





8 comments:

  1. það verður gaman að fylgjast með hérna:)(sérstaklega þar sem maður skilur smá í þessu crossfittungumáli núna)hahaha

    ReplyDelete
  2. Hahaha já :) Velkomin í Crossfit fjölskylduna Mattý mín! Núna getum við farið að taka æfingar saman þar sem að þú ert útskrifuð af grunnnámskeiðinu :)

    ReplyDelete
  3. kooooooma svoooo :)

    ReplyDelete
  4. Líst súper vel á þig Mattý! Tek æfingu með þér þegar ég kem næst heim til Íslands :)

    ReplyDelete
  5. já ohhh ég þarf að fresta að kaupa kort þangað til næsta mánud!ætlaði að mæta í dag og taka "yngri karen"haha en svo beilaði tanja og ég eiginlega meikaði ekki að mæta ein!ingi er að fara í viðtal til svíþjóðar á miðv og við komum ekki fyrr en á sunnd heim!það verður gaman að geta mætt með þér jakó á æfingu!þótt ég verði örugglega eins og hálviti við hliðiná þér;)
    og elín!ég tek þig á orðinu;)

    ReplyDelete
  6. Ertu að koma til Stockholm? Þá tekuru bara æfingu með mér í CrossfitNordic:)

    ReplyDelete
  7. Ég skrifa bara hvernig æfingin mín í gær gekk hérna.
    Ég tók 3x2 105kg í réttstöðu, 3x2 55kg í clean&jerk, 3x2 muscle up en fór samt alltaf niður eftir hvert muscle up. Hef ekki enn náð að gera 2 í röð en það fer vonandi að koma :)
    Ég þurfti svo að skjótast í spinning fyrir þolæfinguna, sem ég tók þó að spinning tímanum loknum og var um 6 mín með hana.
    -Jakobína-

    ReplyDelete
  8. hahaha æði Jakó.. 45 mínútna spinningtíma til að ná mér niður.. engin nema þú og jú kannski Ella.. en eins og áður, my hero´s ! knús:)

    ReplyDelete